Hvað er lifandi virkni í appinu?
Appið sýnir það sem skiptir máli á lásskjánum og í Dynamic Island (iPhone) eða sem tilkynningu efst (Android): óbirtar breytingar, þegar þú ert í beinni og samninga sem bíða eftir undirskrift þinni.
Í appinu
- Í fyrsta skipti spyr iPhone hvort JetLinkt megi sýna lifandi virkni. Ýttu á Leyfa.
- Til að fjarlægja eina ýtirðu á Seinna eða Fela. Á Android strýkurðu tilkynninguna bara burt.
- Þú getur slökkt alveg á þeim undir Meira → Stillingar → Lifandi virkni.
Gott að vita
- Allt hverfur af sjálfu sér um leið og það er klárað: þegar þú hefur vistað, ert ekki lengur í beinni eða hefur skrifað undir samninginn.
- „Þú ert í beinni“ birtist aðeins þegar kveikt er á beina útsendingarborðanum þínum.